Grein
í Morgunblaðinu 25. júlí 2005 eftir Söru M. Kolka
Bowen-tækni er að ryðja sér til rúms á Íslandi en Bowen-tæknin er meðferð sem hefur áhrif á ólíklegustu kvilla og verki og er alls hættulaus.
Samkvæmt því sem kemur fram á upplýsingabæklingum um meðferðina er hún þekkt fyrir að hafa góð áhrif á þráláta verki, astma, lélegt ónæmiskerfi, stoðkerfisvandamál (eins og verki í öxlum og bakverkjum) og íþróttameiðsl, til að nefna aðeins fá dæmi.
Margeir Sigurðarson hefur innleitt tæknina hér á Íslandi og heldur úti skóla hérlendis í Bowen-tækni.
"Bowen-tækni er mjúk en nákvæm meðhöndlun þar sem sá sem meðhöndlar framkvæmir rúllandi hreyfingar þvert á vöðvana og truflar boðskipti til vöðva, bandvefs og orku innan líkamans" útskýrir Margeir en hann er fyrsti íslenski Bowentæknirinn. Hann heldur áfram: "Þetta er ekki sjúkraþjálfun eða nudd og er einnig ólíkt höfuðbeina- og Spjaldhryggsjöfnun að því leiti að meðhöndlarinn leitar ekki að stíflum í líkamanum heldur hjálpar líkamanum að finna þær sjálfur. Meðhöndlarinn í Bowen-tækni notar léttar hreyfingar og mikilvægar pásur á nokkura mínútna fresti til að gefa líkamanum tíma á að átta sig."
Erfitt hefur reynst að útskýra mátt meðferðarinnar þar sem Bowen-tækni er ekki sambærileg við aðrar líkamsmeðferðir og í raun er engum þrýstingi beitt, ekki eru nein tæki notuð eða olíur eins og tíðkast í öðrum meðferðum. Líkaminn er ekki þvingaður til neins heldur er talið að hreyfingarnar komi af stað heilunarferli í líkamanum, ýti undir verkjalosun og að orkan endurnýjist. "Það má segja að bowen-tæknin minni líkamann á hvernig hann eigi að lækna sig sjálfur," segir Margeir.
Bowen-tæknin er tiltölulega ný aðferð og er hún nefnd í höfuðið á Ástralanum Thomas Ambrose Bowen sem fann upp tæknina um miðbik síðustu aldar. Sagðist hann geta fundið spennu í vöðvum og vita hvaða svæði væri best að meðhöndla til að hjálpa líkamanum að slaka á og hafa áhrif á verkjalosun. Bowentæknin hefur verið notuð í Evrópu frá árinu 1992 og á Íslandi frá árinu 2002 og er því ung grein. Á stuttum tíma hafa fjölmargar rannsóknir (í minni kantinum) verið gerðar á árangri meðferðarinnar.
Samkvæmt því sem kemur fram á vefsíðunni http://www.boweninfo.com
kom fram í einni rannsókn að um 79% mígrenissjúklinga höfðu fundið fyrir jákvæðum breytingum í kjölfar meðferðarinnar. Önnur rannsókn á astma sjúklingum leiddi í ljós að ekki aðeins minnkaði tíðni astma kasta hjá um 83% af hópnum heldur fann mikill meirihluti fyrir árangri gegn öðrum kvillum svo sem bak-, háls- og axlarverkjum, hnémeiðslum, frjókornaofnæmi, meltingartruflunum, svefnleysi, kvíða, streitu og þunglyndi.
Rannsóknir hafa einnig verið framkvæmdar af læknum á tengslum milli bowen- tækninar og vefjagigtar og hjartsláttatruflana.
Efasemdarmenn eiga væntanlega erfitt með að trúa svoleiðis niðurstöðum enda segir Margeir "ekki óalgengt að óhefbundnar meðferðir séu litnar hornauga af sumum fræðimönnum í hefðbundinni læknisfræði". Það virðist þó ekki trufla hann og segir hann árangurinn ekki leyna á sér og hann sé í raun besta auglýsingin.
En hvernig fer bowen-meðferðin fram?
"Meðferðin tekur um það bil 35-45 mínútur. Enginn þarf að hátta í Bowen-tæknitímum þar sem hægt er að vinna hana í gegnum þunnan fatnað. Tvær til þrjár meðferðir með viku millibili eru oftast nóg til að ná fram varanlegum bata við langvarandi verkjum þó stundum séu fleiri meðferðir nauðsynlegar. Yfirleitt finnur fólk mun strax eftir fyrsta tímann og aðferðin hefur reynst öllum aldurshópum vel, allt frá ungabörnum til aldraðra," útskýrir Margeir. Aðspurður um hvort trúgirni (það sem stunduð er kallað lyfleysu áhrif) hafi áhrif á árangurinn segir Margeir ekki svo vera.
"Hingað hafa margir karlmenn til dæmis komið sem eru nánast dregnir inn af konunum sínum. Þeir hafa enga trú á þessu og sérstaklega þar sem þetta er svona "pot og pikk" í þeirra augum. Hins vegar virkar meðferðin langoftast vel á þá og þeir verða mjög hissa á árangrinum," segir Margeir og glottir.
Sjúkraþjálfarar og hjúkrunarfræðingar hafa innleitt tæknina og sumir læknar eru ansi jákvæðir gagnvart meðferðinni þó vísindin eigi erfitt með að útskýra hvernig hún virkar nákvæmlega. Það má hafa það í huga að nútímalækningar eru aðeins um 80 ára gamlar í þeirri mynd sem þær eru núna svo það er spurning hvort þær geti talist eina árangursríka meðferðin við ýmiskonar kvillum.
"Bowen-tæknin læknar ekki en hjálpar frekar fólki að líða betur og líkamanum að lækna sig sjálfur, " segir Margeir að lokum.